Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

23 February 2024

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.120 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 10,10% vöxtum, sem samsvarar 0,30% álagi á 3M Reibor og 880 milljónum í sex mánaða víxilinn á 10,25% vöxtum sem samsvarar 0,42% álagi á 6M Reibor eða samtals 2.000 milljónir. Á gjalddaga, þann 1. mars næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 2.120 milljónir króna.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum gríðarlega þakklát fyrir traustið sem fjárfestar halda áfram að sýna félaginu.”
Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 1. mars 2024.
Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is