Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

24 November 2023

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.400 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 10,30% vöxtum, sem samsvarar 0,39% álagi á 3M Reibor og 600 milljónum í sex mánaða víxilinn á 10,48% vöxtum sem samsvarar 0,51% álagi á 6M Reibor eða samtals 2.000 milljónir. Á gjalddaga, þann 1. desember næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 2.340 milljónir króna.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum gríðarlega þakklát fyrir traustið sem fjárfestar hafa sýnt félaginu með hagkvæmu álagi á Reibor.”

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 1. desember 2023.

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is