Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

25 August 2023

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 3.760 milljónir króna. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.180 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 10,20% vöxtum, sem samsvarar 0,39% álagi á 3M Reibor og 720 milljónum á 10,40% vöxtum sem samsvarar 0,51% álagi á 6M Reibor eða samtals 1.900 milljónir.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum gríðarlega þakklát fyrir traustið sem fjárfestar hafa sýnt félaginu með hagkvæmu álagi á Reibor.”

Greiðslu- og uppgjörsdagur er á föstudaginn 1. september 2023, nk.

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is