Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum.

25 May 2023

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 6.360 milljónir króna, sem er það mesta sem hefur verði boðið hingað til. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.840 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 9,90% vöxtum, sem samsvarar 0,50% álagi á 3M Reibor og 1.160 milljónum á 9,90% vöxtum sem samsvarar 0,4% álagi á 6M Reibor eða samtals 3.000 milljónir.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum gríðarlega þakklát fyrir mikinn áhuga og traustið sem fjárfestar hafa sýnt félaginu.”

Greiðslu- og uppgjörsdagur er á föstudaginn 2. júní 2023, nk.

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is