Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR 151124 og ÚR 151128

15 March 2024

Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR 151124 og ÚR 151128. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar ársreiknings félagsins, en ársreikningur samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. vegna rekstrarársins 2023 var birtur fyrr í dag 15. mars 2024.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4227.

Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR 151124 og ÚR 151128