Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR 151124 og ÚR 151128

29 August 2023

Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR 151124 og ÚR 151128. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar árshluta- og ársreiknings félagsins en árshlutauppgjör samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. var birt fyrr í dag 29. ágúst 2023.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4200.

Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar kvaðir