Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR 151124 og ÚR 151128

30 August 2022

Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR 151124 og ÚR 151128. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar árshluta- og ársreiknings félagsins en árshlutauppgjör samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. var birt fyrr í dag 30. ágúst 2022.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4227.

Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR 151124 og ÚR 151128