Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Birting grunnlýsingar

22 August 2023

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf., kt. 410998-2629, Fiskislóð 14 101 Reykjavík, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Grunnlýsingin er dagsett 22. ágúst 2023, staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, https://www.urseafood.is/is/skuldabrefafjarmognun/.

Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins við Fiskislóð 14 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu.

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, á netfanginu rvg@urseafood.is eða í síma 580-4227