Útgerðafélag Reykjavíkur verður 25% hluthafi í Rafnar

8 September 2023

Fyrr í dag gengu Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) og Rafnar frá samkomulagi um kaup ÚR á 10% hlut í OK Eignarhaldsfélagi ehf., sem er móðurfélag Rafnar fyrir 400 milljónir króna. Samhliða kaupunum þá mun ÚR nýta breytirétt á skuldabréfi og verður ÚR þar með samtals 25% hluthafi í OK Eignarhaldsfélagi ehf. Runólfur Viðar Guðmundsson og Guðmundur Kristjánsson sitja í stjórn félagsins fyrir hönd ÚR. Félag í eigu Össurar Kristinssonar og fjölskyldu hans er áfram stærsti hluthafi félagsins.

Fjárfesting ÚR verður nýtt til að styðja við áframhaldandi vöxt og uppbyggingu félagins á alþjóðamörkuðum en mikil eftirspurn er eftir bátum sem byggðir eru samkvæmt einkaleyfisvarinni hönnun Össurar Kristinssonar.

„Langtímamarkmið ÚR er að einblína á nýsköpun í arðbærum og vaxandi mörkuðum í haftengdri starfsemi og er fjárfestingin í Rafnar hluti af þeirri stefnu“ segir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur. 

Það er gríðarlegur styrkur að fá Útgerðarfélag Reykjavíkur inn sem hluthafa og ekki síður þátttakanda í þeirri vegferð sem framundan er hjá félaginu. Sú þekking á haftengdri starfsemi, útgerð skipa og rekstri stórra öflugra fyrirtækja sem ÚR kemur með að borðinu er ómetanleg“ segir Björn Ársæll Pétursson, stjórnarformaður Rafnar.