Útgáfa á víxli

5 January 2023

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.  (ÚR) hélt lokað útboð á ÚR 23 0302, tveggja mánaða víxli. ÚR hefur ákveðið að selja 2.500 milljónir með 7,45% vöxtum, sem samsvarar 0,99% álagi á Reibor.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR: „Við hjá ÚR erum afar þakklát fyrir þann mikla áhuga og traust sem fjárfestar hafa sýnt félaginu. Okkur hlakkar til að halda áfram á þessari vegferð með fjárfestum og samstarfsaðilum okkar.“
Greiðslu- og uppgjörsdagur er á þriðjudaginn 10. janúar 2023.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is