Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlum

26 May 2026

Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á á nýjum 6 mánaða víxlaflokki UR 26 1201. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.440 m.kr. með 8,48% vöxtum, sem samsvarar 0,34% álagi á 6M Reibor. Á gjalddaga, þann 1. júní næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 1.500 milljónir króna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 1. júní 2026.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR:
„Við hjá ÚR erum sem fyrr þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna félaginu. Það er ljóst að innlendur fjármálamarkaður hefur trú á fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi.”

Nánari upplýsingar veitir:
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 580-4200 eða rvg@urseafood.is