Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR 260415, ÚR 151126, ÚR 151128 og ÚR 270820. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar ársreiknings félagsins, en ársreikningur samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. vegna rekstrarársins 2025 var birtur 10. apríl 2026.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.
Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4227.