Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR

2 April 2025

Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar árshluta- og ársreiknings félagsins en ársreikningur samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. vegna rekstrarársins 2024 var birtur 31. mars sl.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4200.

Staðfesting Deloitte 31.12.2024